23 Júní 2016 16:34

Brot 42 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 150 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.