10 Apríl 2018 17:01

Brot 77 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.