27 Febrúar 2015 15:55

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð, en sjókoma var á meðan henni stóð, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.