29 Nóvember 2016 13:11

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Suðurhólum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurhóla í vesturátt, að Álftahólum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Suðurhólum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.