20 Janúar 2017 11:45

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim vinsamlegu tilmælum til ökumanna bifreiða, sem búa yfir myndavélabúnaði að þeir yfirfari myndefnið í þeirri von að það geti gagnast lögreglu við leit hennar að Birnu Brjánsdóttur. Hér er einvörðungu og aðeins átt við myndefni sem tekið var upp laugardagsmorguninn 14. janúar frá kl. 7 – 11.30. Jafnframt er tekið fram að einungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tímabili sem kann að sýna rauðan smábíl af gerðinni Kia Rio. Leitað er eftir myndefni frá höfuðborgarsvæðinu og utan þess, raunar frá stórum hluta suðvestanlands, þ.e. á Reykjanesi, Suðurlandi (að Selfossi) og Vesturlandi (upp í Borgarfjörð). Vitað er að margir ökumenn, ekki síst atvinnubílstjórar, búa yfir slíkum myndavélabúnaði og eru hinir sömu beðnir um að yfirfara myndefnið með framangreint í huga.

Þeir sem búa yfir slíkum myndavélabúnaði og vilja koma myndefni til lögreglu eru beðnir að athuga:
Að búið sé að fara yfir myndefnið og kanna hvort að þar sé bifreið sem getur átt við lýsinguna.
Að tímasetning á atviki komi fram.

Það að fara yfir myndbönd er mjög tímafrekt og til að nýta mannafla lögreglu sem best biðjum við fólk að gæta að þessu.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma lögreglu 444 1000, í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Leitin að Birnu Brjánsdóttur

Leitin að Birnu Brjánsdóttur