Börn og Internetið -Ábendingar til forráðamanna barna- Til foreldra barna sem hafa aðgang að Internetinu. Borið hefur á því að óprúttnir náungar "lokki" til sín börn á spjallrásunum með ýmislegt misjafnt í huga. Einnig er að finna ýmislegt miður gott efni á netinu s.s. klám og fordóma af ýmsu tagi. Foreldri sem sýnir áhuga er besta vörn barns sem ferðast um á netinu. Hér eru nokkrar ábendingar í þessu sambandi:
- Foreldrar ættu sjálfir að gerast Internetnotendur eða í það minnsta auka kunnáttu sína í þeim efnum.
- Foreldrar ættu að ferðast um Internetið með börnum sínum.
- Tölvan á heimilinu ætti að vera staðsett þannig að foreldrar sjái hvað börnin eru að aðhafast. Það er ekki ráðlegt að leyfa ungum börnum að hafa tölvur tengdar Internetinu í herbergjum sínum.
Kenna þarf börnum helstu varnir þegar ferðast er um Internetið. Alveg eins og við kennum þeim hvernig þau eiga að hegða sér í umferðinni verðum við að upplýsa þau hvernig þau eiga að hegða sér á netinu. Hér eru nokkur atriði sem Childnet International* bendir á að reynst geti hjálpleg:
- Börn ættu alltaf að segja foreldrum eða forráðamönnum ef þau sjá eitthvað sem þeim finnst óþægilegt.
- Þau ættu aldrei að láta í té persónulegar upplýsingar á netinu s.s. nafn, heimilisfang, símanúmer, skóla, kreditkortanúmer og hvað þá að senda myndir af sjálfum sér.
- Þau ættu aldrei að gefa upp aðgangsorð eða leyniorð.
- Þau ættu aldrei að samþykkja að hitta einhvern sem þau hafa haft samskipti við á Internetinu án samþykkis forráðamanna. Gott væri ef forráðamaður væri með í för þegar til slíks fundar er gengið.
- Ekki opna tölvupóst eða gögn sem send eru frá ókunnugum. Slík gögn gætu m.a. smitað tölvur með vírus eða innihaldið óæskilegt efni.
- Börn ættu ekki að vera í samskiptum á spjallrásum eða með tölvupósti við einhvern sem þeim finnst vera óþægilegur af einhverjum ástæðum.
Eins og kom fram hér að ofan eru foreldrar besta vörn barna sem ferðast um Internetið en til er hugbúnaður (síur) sem gerir foreldrum kleift að takmarka aðgengi barna að óæskilegu efni á vefnum. Auk þess býr flestur hugbúnaður sem smíðaður er í þessum tilgangi einnig upp á marga aðra möguleika s.s. eftirlit með heimsóknum á vefsíður, spjallrásir og fréttahópa. Hafið í huga að þessi hugbúnaður hindrar ekki að óæskilegt efni birtist en hann getur dregið úr líkum á því.
Hér eru vefslóðir að hugbúnaði sem unnt er að nota í þessum tilgangi:
Cybersitter - Net Nanny - Cyper Patrol - Cyper Snoop
Hægt er að fá hugbúnaðinn til reynslu, án kostnaðar, eða kaupa hann með öllum þeim möguleikum sem ekki fylgja reynsluútgáfu. Hugbúnaður þessi er mismunandi og verður ekki lagt mat á hann hér eða gert upp á milli hans.
Aðrar áhugaverðar síður fyrir foreldra og börn:
GetNetWise - INHOPE - Internet Watch Foundation - SafeKids.com - FBI (vefsíða fyrir yngri börn) - FBI (vefsíða fyrir eldri börn og unglinga)
* Childnet International eru einkasamtök stofnuð 1995 í þeim tilgangi að auka áhuga barna á alþjóðlegum samskiptum. Heimasíða þeirra er mjög áhugaverð fyrir foreldra og börn.
|