2 Júlí 2015 17:27

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.bachmann@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Myndin gæti vissulega verið skýrari, en er birt í þeirri von að einhver þekki manninn engu að síður.

Mál til rannsóknar