Lögreglustöðin í Neskaupstað
Melagata 2a
740 Neskaupstað
Þjónustusími: 444 0620
Netfang: austurland@logreglan.is
Fax: 444 0601
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Á dögunum fékk embættið tvo örmerkjalesara að gjöf frá Steininum, nytjamarkaði í Neskaupstað.
Lesararnir gera lögreglumönnum kleift að finna eigendur dýra sem rata í hendur lögreglu, hvort sem þau eru týnd eða særð.
Þetta sparar mörg skref og einfaldar leitina til muna.
Takk kærlega Steinninn Nytjamarkaður!
... Sjá meiraSjá minna
3 CommentsComment on Facebook
Frábært að heyra ! Kv. Freyja í Dýrfinnu og Hundasveitinni.
Vá frábært! Vel gert Steinninn ❤️
Frábært
Snjóflóð féllu um síðustu helgi á skíðasvæðum á Austurlandi, í Stafdal og Oddsskarði. Vegna þess hefur almannavarnanefnd Austurlands með sveitarfélögunum tveimur, Múlaþing og Fjarðabyggð sem reka skíðasvæðin á nefndum stöðum, hafið vinnu sem miðar að því að rýna verkferla. Meðal annars verður farið yfir öryggisbúnað, þjálfun starfsmanna, hættumat, áætlanagerð og fleira. Með í þessari vinnu verða fagaðilar eins og Veðurstofa Íslands, svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi og lögregla.
Áhersla verður lögð á að ljúka þessari vinnu sem fyrst.
... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Þetta er allt til hjá Fjarðabyggð... þessi vinna fór fram 2011 og samþykkt í bæjarstjórn, það þarf bara að fara eftir reglunum í stað þess að finna upp hjólið aftur... skal senda ykkur þetta skjal ef þið viljið.
Veðurstofa Íslands sendi fyrir skömmu tilkynningu er varðar varasamar snjóaðstæður í umdæminu, en snjóflóð hafa fallið á skíðasvæðunum í Oddskarði og í Stafdal. Förum varlega í fjalllendi og snævi þöktum brekkum, - sjá hér: ... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Má ekki bæta því við hér að það er búið að banna rennsli utan brauta í Stafdal, a.m.k. meðan aðstæður eru óbreyttar. Veit ekki hvernig það er í Oddskarði.