24 Febrúar 2017 10:39

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun loka fyrir umferð í Bæjarlind í Kópavogi frá kl. 11 í dag og þar til veðrinu slotar. Lokað er fyrir umferð í Bæjarlind frá bæði Reykjanesbraut og Lindarvegi.
Ástæða þessa er að talin er geta stafað hætta af byggingarkrana sem þarna er.