22 September 2017 10:04

Kona á fimmtugsaldri var úrskurðuð látin á Landspítalanum í gærkvöld, en þangað var hún flutt eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur. Lögreglu barst tilkynning um árásina kl. 21.38 og hélt þegar á staðinn. Tveir karlmenn voru handteknir á vettvangi, annar er erlendur ríkisborgari á fertugsaldri og var hann gestkomandi, en hinn er Íslendingur á þrítugsaldri og búsettur í húsinu. Konan sem lést bjó einnig í húsinu, en hún var af erlendu bergi brotin.

Rannsókn lögreglu er skammt á veg komin og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.