31 Mars 2018 11:08

Kl. 08:45 barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um að maður væri látinn í heimahúsi í Árnessýslu.   Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang og staðfestist þá það sem um var tilkynnt.   Tilkynnandinn sjálfur, ásamt öðrum manni sem einnig var á vettvangi, eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi við rannsókn málsins.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að sinni.