10 Apríl 2018 11:52

Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Brotin áttu sér flest stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók  mældist á 164 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann viðurkenndi brot sitt og greiddi sekt á staðnum að upphæð 105 þúsund krónur.

Annar ökumaður sem einnig var staðinn að hraðakstri hafði ekki náð 18 ára aldri.

Þá voru þrír ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.