12 September 2017 15:06

Síðdegis í gær, 11.9.2017, var Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kölluð til þar sem ráðist hafði verið á eldri konu á heimili hennar og henni veittir áverkar.  Rannsókn málsins er á frumstigi en svo virðist að tveir karlmenn hafi vitað að þar væru verðmæti að finna og höfðu þeir með sér á brott talsvert magn af skartgripum.  Lögreglan biður fólk að hafa varan á sé þeim boðnir skartgripir til sölu.   Þeir sem kunna búa yfir upplýsingum um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna gegnum netfangið adalsteinna@lrh.is , einkaskilaboð á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða gegnum símann 444-1000