25 Janúar 2018 16:31

Bráðabirgðaniðurstöður krufningar á líki 27 ára gamals fransks ferðamanns sem fannst látinn í brattlendi við Sandfell í Öræfum þann 16. janúar,  benda til þess að hann hafi látist, á Gamlársdag,  af ofkælingu eftir að hafa fallið í hlíðum fjallsins. Maðurinn kom til landsins að kvöldi Þorláksmessu og tók bílaleigubíl á leigu við komuna.  Af gögnum sem aflað hefur verið við rannsókn málsins liggur fyrir að hann var á bíl sínum  í Skaftafelli þann 29. desember og að um kl. 23:00 að kvöldi 30. desember var  hann staddur á Öræfajökli, í hlíðum Hvannadalshnjúks og átti þá eftir um 8 km göngu,  um óbyggðir, í myrkri að þeim stað þar sem hann fannst.