27 Mars 2015 19:42

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri og Haraldur Sverrisson bæj­ar­stjóri undirrituðu í gær sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæjar um átak gegn heimilisof­beldi. Mosfellsbær er annað sveitarfélagið af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu til að undirrita slíka yfirlýsingu, en Reykjavík staðfesti þátttöku með undirritun 12. janúar sl.

Í yf­ir­lýs­ing­unni felst að þann 1. apríl n.k. munu lög­regl­an og fjölskyldusvið Mosfellsbæjar taka upp nýj­ar verklags­regl­ur í starf­semi sinni. Mark­miðin eru mark­viss­ari viðbrögð og úrræði gegn of­beldi á heimilum og bætt þjón­usta við þolend­ur og gerend­ur.

Með þessari samvinnu verður þjónusta við þolendur  fyrrgreinds ofbeldis bætt til muna með því að samhæfa aðgerðir allra sem að málum koma, einkum  Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar. Öflug upplýsingagjöf um úrræði og eftirfylgd með þolanda hjá fjölskyldusviðinu eru einnig leiðir til þess að styðja og vernda þá sem fyrir ofbeldinu verða. Gerendur fá einnig aðstoð í formi ráðgjafar og boð um meðferð.

Saman gegn ofbeldi