24 Apríl 2015 15:40

Í gær fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu útkall þar sem útivistarfólk hafði fundið torkennilegan mun á göngu sinni við Hafravatn. Á vettvang fóru sérfræðingar frá sérsveit ríkislögreglustjóra og sprengjusveit Landhelgisgæslunnar.

Í ljós kom að um var að ræða sprengju úr sprengjuvörpu, væntanlega frá því á tímum seinni heimstyrjaldar, en æfingar á slík hernaðartæki fóru fram víða kringum höfuðborgarsvæðið kringum og eftir stríð. Var sprengjan gerð óvirk á staðnum.

Gott er að minna fólk á mikilvægi þess að kalla lögreglu strax til, finni það torkennilega muni sem gætu verið hernaðargögn eða sprengiefni enda getur óvarleg meðhöndlun á slíku orðið afdrifarík.