Nei, það má ekki aka eftir að gildistími ökuskírteinis er útrunninn. Ökuréttindin falla úr gildi samkvæmt orðanna hljóðan á þeim degi sem ökuréttindin gilda til.
Ath. þó í þessu sambandi, að almenn ökuréttindi (B-réttindi), sem voru í gildi þann 1. mars 1988, og gefin höfðu verð út til 10 ára, gilda til 70 ára aldurs án endurnýjunar.
Ef sótt er um útgáfu fullnaðarskírteinis eða endurnýjun ökuskírteinis þegar meira en tvö ár eru frá því ökuskírteinið féll úr gildi skal umsækjandi standast hæfnispróf. Lögreglustjóri getur þó ákveðið að ekki þurfi að gangast undir hæfnispróf.
Tengt efni:
|