Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Ökuréttindi   

Hvað tákna tákntölurnar á íslenska ökuskírteininu ?

Um tákntölur er fjallað í viðauka VII. reglugerð um ökuskírteini, sjá eftirfarandi:


[VII. VIÐAUKI  (Með reglugerð um ökuskírteini)

Ákvæði um viðbótarupplýsingar, skilyrði og takmarkanir er varða ökuskírteini.

 

1. Sameiginleg ákvæði.

Tákntölur í 2. og 3. tölulið tilgreina viðbótarupplýsingar, skilyrði og takmarkanir er varða handhafa ökuskírteinis og skulu færðar í dálk 12 á ökuskírteininu, að jafnaði aftan við þann réttindaflokk sem við á. Ef dálkurinn nægir ekki fyrir tákntölur skulu þær með tilvísun (*) færðar neðan við ökuréttindaflokkana og dálkana 9 - 11. Ef tákntala varðar alla réttindaflokka skal hún og færð neðan við ökuréttindaflokkana. Sama á við um tákntölur vegna stjórnsýslu.

Tákntölurnar eru annars vegar samræmdar tákntölur (1 - 99) sem gilda innan Evrópska efnahagssvæðisins og hins vegar innlendar tákntölur (100 og hærra) sem einungis gilda innan viðkomandi lands.

Lögreglustjóri ákveður, eftir atvikum á grundvelli tilmæla eða meðmæla læknis eða prófdómara, hvaða tákntölur, fyrir undirflokk ef við á, skal nota við útgáfu ökuskírteinis.

Tákntölurnar eru annaðhvort notaðar einar sér eða ásamt tákntölu fyrir undirflokk. Dómsmálaráðuneytið getur sett nánari leiðbeiningar um notkun tákntalna og undirflokka.

Tákntölurnar 72 - 79 skal nota við skipti á ökuskírteinum sem gefin hafa verið út í ríkjum sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu, að því leyti sem hlutaðeigandi ökuskírteini er með undirflokk ökutækja í samræmi við tilskipun EB um ökuskírteini. Tákntölurnar 74 - 77 skulu með sama hætti notaðar við útgáfu nýs ökuskírteinis í stað eldra ökuskírteinis.

 

2. Tákntölur sem gilda fyrir Evrópska efnahagssvæðið.

ÖKUMAÐUR (læknisfræðilegar ástæður)

 

01.        Leiðrétting sjónar og/eða vörn

01.01    Gleraugu

01.02    Snertilinsa (snertilinsur)

01.03    Hlífðargleraugu

01.04    Ógegnsæ linsa

01.05    Augnhlíf

01.06    Gleraugu eða snertilinsur

 

02.        Heyrnartæki/samskiptastoð

02.01    Heyrnartæki við annað eyra

02.02    Heyrnartæki við bæði eyru

 

03.        Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir fætur og hendur/handleggi

03.01    Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir hönd-handlegg/hendur-handleggi

03.02    Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir fót/fætur

 

05.        Takmarkaður akstur (af læknisfræðilegum ástæðum)

05.01    Takmarkað við akstur í dagsbirtu (t.d. frá einni klukkustundu eftir sólarupprás og þar til ein klukkustund er til sólseturs)

05.02    Takmarkað við akstur innan ….. km radíus frá heimili skírteinishafa eða eingöngu innan bæjar/svæðis ….

05.03    Takmarkað við akstur án farþega

05.04    Takmarkað við akstur sem er ekki hraðari en ... km/klst.

05.05    Akstur aðeins heimill þegar farþegi, sem er handhafi ökuskírteinis, er með í för

05.06    Takmarkað við akstur án eftirvagns/tengitækis

05.07    Akstur óheimill á hraðbrautum

05.08    Ekkert áfengi

 

Aðlögun ökutækis

 

10.        Aðlagaður gírkassi

10.01    Beinskipting

10.02    Sjálfskipting

10.03    Rafstýrð skipting

10.04    Aðlöguð gírstöng

10.05    Takmörkun á fjölda gíra

 

15.        Aðlagaður tengslisbúnaður

15.01    Aðlagaður tengslisfetill

15.02    Beinstýrt tengsli

15.03    Sjálfvirkt tengsli

15.04    Hlíf framan við tengslisfetil eða tengslisfetill sem leggja má saman eða fjarlægja

 

20.        Aðlagaður hemlabúnaður

20.01    Aðlagaður hemlafetill

20.02    Stækkaður hemlafetill

20.03    Hemlafetill fyrir vinstri fót

20.04    Hemlafetill við il

20.05    Skásettur hemlafetill

20.06    Beinstýrður aksturshemill

20.07    Aukin virkni aksturshemils - hámarks styrking aksturshemils

20.08    Aukin virkni neyðarhemils - neyðarhemill sambyggður aksturshemli

20.09    Aðlagaður stöðuhemill

20.10    Rafknúinn stöðuhemill

20.11    Fótstiginn stöðuhemill

20.12    Hlíf fram við hemlafetil eða hemlafetill sem leggja má saman eða fjarlægja

20.13    Hemill sem stjórnað er með hnénu

20.14    Rafknúinn aksturshemill

 

25.        Aðlagaður búnaður fyrir eldsneytisgjöf

25.01    Aðlagaður eldsneytisfetill

25.02    Eldsneytisfetill við il

25.03    Skásettur eldsneytisfetill

25.04    Beinstýrð eldsneytisgjöf

25.05    Eldsneytisgjöf stýrt með hné

25.06    Eldsneytisgjöf með aflgjafa (t.d. rafmagni eða lofti)

25.07    Eldsneytisfetill vinstra megin við hemlafetil

25.08    Eldsneytisfetill vinstra megin

25.09    Hlíf framan við eldsneytisfetil eða eldsneytisfetill sem leggja má saman eða fjar­lægja

 

30.        Aðlagaður sambyggður hemlabúnaður og búnaður fyrir eldsneytisgjöf

30.01    Fetlar hlið við hlið

30.02    Fetlar í sömu eða nánast sömu hæð

30.03    Eldsneytisgjöf og hemill sem renna má til

30.04    Eldsneytisgjöf og hemill sem renna má til og með stoðtæki

30.05    Eldsneytisfetill og hemlafetill sem leggja má saman eða fjarlægja

30.06    Hækkað gólf

30.07    Hlíf við hlið hemlafetils

30.08    Hlíf fyrir gervilim við hlið hemlafetils

30.09    Hlíf framan við eldsneytis- og hemlafetil

30.10    Stuðningur við hæl og/eða fót

30.11    Rafstýrð eldsneytisgjöf og hemill

 

35.        Aðlagað skipulag stjórntækja

(rofar fyrir ljósabúnað, rúðuþurrkur/-sprautur, flauta, stefnuljós o.s.frv.)

35.01    Beita má stjórntækjum án þess að það skerði öryggi við stjórnun og meðferð ökutækisins

35.02    Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.)

35.03    Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi taki vinstri handar á stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.)

35.04    Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi taki hægri handar á stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.)

35.05    Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.) og sambyggðum búnaði fyrir eldsneytisgjöf og hemlun

 

40.        Aðlagaður stýrisbúnaður

40.01    Venjulegt aflstýri

40.02    Aflstýri með auknu afli

40.03    Stýri með varabúnaði

40.04    Lengd stýrisstöng

40.05    Aðlagað stýrishjól (stærra og/eða með þykkara gripi, með minna þvermáli o.s.frv.)

40.06    Skásett stýrishjól

40.07    Lóðrétt stýrishjól

40.08    Lárétt stýrishjól

40.09    Akstri stýrt með fótum

40.10    Annars konar aðlögun stýrisbúnaðar (stýrispinni o.s.frv.)

40.11    Hnúður á stýrishjóli

40.12    Handspelka á stýrishjóli

40.13    Með sinaspelku (orthes tenodes)

 

42.        Aðlagaður (-ir) baksýnisspegill/-speglar

42.01    Úti-baksýnisspegill á (vinstri eða) hægri hlið

42.02    Úti-baksýnisspegill á frambretti

42.03    Auka inni-baksýnisspegill fyrir ökumann til að fylgjast með umferðinni

42.04    Gleiðhorns-inni-baksýnisspegill

42.05    Baksýnisspegill sem gerir ökumanni kleift að fylgjast með blinda svæðinu

42.06    Rafstýrður úti-baksýnisspegill eða -speglar

 

43.        Aðlagað ökumannssæti

43.01    Ökumannssæti komið fyrir í hæð sem veitir ökumanni góða útsýn og er í eðlilegri fjarlægð frá stýrishjóli og fetlum

43.02    Ökumannssæti aðlagað lögun líkama ökumanns

43.03    Ökumannssæti með stoð til beggja hliða til að auka stöðugleika

43.04    Ökumannssæti með armhvílu

43.05    Ökumannssæti komið fyrir á lengdri rennibraut

43.06    Aðlagað öryggisbelti

43.07    Öryggisbelti af H-gerð

 

44.        Aðlögun bifhjóls

44.01    Báðum hemlum beitt með einu stjórntæki

44.02    Handstýrður (aðlagaður) hemill fyrir framhjól

44.03    Fótstýrður (aðlagaður) hemill fyrir afturhjól

44.04    (Aðlagað) handfang fyrir eldsneytisgjöf

44.05    (Aðlöguð) beinstýrð gírskipting og beinstýrt tengsli

44.06    (Aðlagaður) baksýnisspegill eða -speglar

44.07    (Aðlöguð) stjórntæki (stefnuljós, hemlaljós, …)

44.08    Ökumannssæti er ekki hærra en svo að ökumaður nær samtímis með báðum fótum til jarðar þegar hann situr

 

45.        Einungis bifhjól með hliðarvagni

 

50.        Takmarkað við ökutæki/verksmiðjunúmer (verksmiðjunúmer ökutækisins)

 

51.        Takmarkað við tiltekið ökutæki/skráningarmerki (skráningarnúmer ökutækisins)

 

Stjórnsýsla

 

70         Skipt á erlendu ökuskírteini nr. ..... sem var gefið út af ..... (einkennisstafir ESB/SÞ fyrir þriðju lönd, t.d. 70. 0123456789.NL)

 

71         Samrit ökuskírteinis nr. ....... (einkennisstafir ESB/SÞ fyrir þriðju lönd t.d.  71.987654321.HR)

 

72         Takmarkað við ökutæki í flokki A með aflvél ekki yfir 125 rúmsentimetrar og vélarafl sem fer ekki yfir 11 kW (A1)

 

73         Takmarkað við þrí- og fjórhjóla ökutæki í flokki B (B1)

 

74         Takmarkað við ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1)

 

75         Takmarkað við ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1)

 

76         Takmarkað við ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1) með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins (C1E)

 

77         Takmarkað við ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé:

a.         leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftir­vagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins og

b.         eftirvagninn/tengitækið ekki notað til fólksflutninga

            (D1E)

 

78         [Takmarkað við ökutæki með sjálfskiptingu][1]        

 

79         [Takmarkað við ökutæki sem skilgreint er í sviga][2]

 

90.01: til vinstri

90.02: til hægri

90.03: vinstri

90.04: hægri

90.05: fyrir hönd

90.06: fyrir fót

90.07: má nota


 

3. Innlendar tákntölur.

Tákntölur í þessum lið skulu jafnan færðar í dálk 12 neðan við ökuréttindaflokkana. Aftan við tákntölurnar skal innan sviga tilgreina lokadag réttindanna. Þessar tákntölur hafa einungis gildi hér á landi.

400       Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokk B

425       Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokk D (eftir atvikum D1)

450       Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokkana B og D (eftir atvikum D1)

500       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokksins B.

525       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A og B.

530       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C og E (Ökukennararéttinda til réttindaflokks B aflað fyrir 2000)

540       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C og E (Öku­kennararéttinda til réttindaflokks B aflað fyrir 2000)

550       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C, D og E.

575       Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C, D og E.][3]

[...][4]

 

 



[1] Rg. 1054/2004, 11. gr.

[2] Rg. 1054/2004, 11. gr.

[3] Rg. 862/2003, 16. gr.

[4] Rg. 747/2002, 2. gr.

Tengt efni:

 

 

Til baka
Breytt: 27. janúar 2005

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að frá og með 1. janúar 2007 tók lögreglustjórinn á Hvolsvelli yfir löggæslu á Vík
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur