Í nokkrum tilfellum hafa gölluð ökuskírteini komist í umferð. Þetta á eingöngu við lítinn hluta þeirra ökuskírteina sem gefin voru út á tímabilinu 15. ágúst 1997 til 15. október 2001.
Galli ökuskírteinanna er fólginn í því að blekið sem notað var við að prenta myndina af handhafa skírteinisins þoldi illa dagsbirtu, upplitaðist því með tímanum og er myndin í nokkrum tilvikum horfin af skírteininu.
Þeir sem hafa ökuskírteini með þessum galla undir höndum geta fengið því skipt fyrir nýtt sér að kostnaðarlausu, en í öllum tilvikum verður viðkomandi að koma með ökuskírteinið á skrifstofu lögreglustjórans þar sem það var gefið út. Þar verður lagt mat á það hvort um galla á ökuskírteininu sé að ræða eða hvort rekja má "gallann" til illrar meðferðar. Í nokkrum undantekningartilvikum hafa óprúttnir aðilar reynt að má myndina af með ýmsum aðferðum, en slíkt er alltaf hægt að sjá á skírteininu.
Þeir sem eru búsettir erlendis og sækja um endurnýjun eða nýtt ökuskírteini hjá sendiráði Íslands erlendis verða að láta ökuskírteinið sem þeir telja gallað fylgja með umsókn um nýtt ökuskírteini til að hægt sé að leggja mat á það hvort skírteinið sé gallað eða hafi hlotið slæma meðferð. Á meðan þurfa þeir að vera án ökuskírteinis. |