Það eru lögreglustjórar (sýslumenn utan Reykjavíkur) sem gefa út stæðiskort fyrir fatlaða.
Umsækjendur þurfa að fylla út umsókn og skila inn ásamt læknisvottorði og ljósmynd (passamynd). Viðkomandi lögreglustjóri leggur síðan mat á umsókn um stæðiskort og gefur út stæðiskortið að uppfylltum skilyrðum reglugerðar um útgáfu stæðiskorta fyirr fatlaða, nr. 369/2000.
Umsóknareyðublað er að finna á lögregluvefnum undir liðnum "Eyðublöð" hér til vinstri á síðunni.
Tengt efni:
Reglugerð um útgáfu stæðiskorta fyrir fatlaða á heimasíðu stjórnarráðsins |