11 Ágúst 2017 16:44

Staðfest er að sýking sem kom upp meðal gesta á Úlfljótsvatni í gær er hefðbundin magapest af ætt Nóró veira.   Vinna í fjöldahjálparstöð sem komið var á í Grunnskólanum í Hveragerði hefur gengið vel og virðist sýkingin nú í rénun.   6 eru veikir nú þegar þetta er ritað.   Byrjað er að útskrifa þá sem ekki hafa veikst og mun Skátahreyfingin, í samráði við Rauða kross Íslands, aðstoða þau við að koma sér fyrir en aðstaða að Úlfljótsvatni er enn lokuð.   Undirbúningur að þrifum og sótthreinsun fjöldahjálparstöðvarinnar í Grunnskólanum er hafinn og standa vonir til þess að röskun á starfi kennara Grunnskóla Hveragerðis verði sem minnst en til stendur að þeir hefji undirbúning að vetrarstarfi sínu, á komandi vetri, á mánudag.

Enda þó verkefninu sé ekki lokið er tilefni til þess að hrósa þeim sem að máli þessu komu fyrir fagleg viðbrögð enda verður árangurinn alltaf eftir því sem í er lagt.