23 Júní 2008 12:00

Í gærkvöldi barst lögreglunni á Sauðárkróki tilkynning frá fólki, sem var á göngu við Bjarnarvötn á Skaga, um að það hefði hugsanlega séð ísbjörn við Bjarnarfell. Sá fólkið tilsýndar hvítt dýr sem hreyfði sig þunglamalega. Fólkið náði ljósmyndum af dýrinu, en þær munu þó vera nokkuð óskýrar. Eftir skoðun myndanna og viðræður við fólkið, sem lögregla telur trúverðugt, var ákveðið að leita svæðið úr lofti. Var notast við tvær flugvélar í nótt við leitina, en þoka gerði þó leitarmönnum erfitt fyrir. Er von nú í morgunsárið á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem halda mun leitinni áfram. Vill lögreglan beina því til vegfaranda á þessu svæði að sýna aðgát, og hvetur hún fólk til þess að vera ekki á ferð á þessum slóðum að óþörfu.