14 Júní 2016 11:22

Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 162 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.  Þá voru allmargir ökumenn kærðir fyrir brot á stöðvunarskyldu, ólöglega lagningu bifreiða sinna, notkun síma án handfrjáls búnaðar og akstur án öryggisbelta. Loks vorur skráningarnþumer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til skoðunar eða voru ótryggðar.