12 Desember 2017 10:10

Á laugardaginn kemur, 16. desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað “Löggutíst”. Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra, Lögreglan á Suðurnesjum og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því kl. 16  til kl. 04 á sunnudagsmorguninn. Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.

Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglanNE – eða á www.twitter.com/logreglanNE

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan

Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á https://twitter.com/sudurnespolice