8 Janúar 2018 13:07

Hundrað sjötíu og fimm ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Fjórir þeirra reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var enn fremur gert að hætta akstri sökum þess að hann hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum.