2 Desember 2016 16:11

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í miðborginni í gærkvöld og nótt í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Hinir sömu eiga ökuleyfissviptingu yfir höfði sér, en fjórum ökumönnum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Um 200 ökumenn voru stöðvaðir í þessu eftirliti og því er brothlutfallið óvenju hátt.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.