11 Desember 2017 15:35

Fimm hundruð og sjötíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Átta þeirra reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var enn fremur gert að hætta akstri sökum þess að hann hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum.