10 Janúar 2017 16:19

Tæplega sjö hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Sjö ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fimm til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.