9 Janúar 2018 11:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók hvítum eða gráum jepplingi aftan á gráa Toyotu Corolla á Hringbraut í Reykjavík sunnudaginn 31. desember sl. um kl. 16.35. Toyotunni var ekið Njarðargötu og beygt vestur Hringbraut þegar áreksturinn varð, en ökumaður jepplingsins, karlmaður, hirti ekki um stöðva og ók af vettvangi.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að árekstrinum eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gisli.arnason@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.