2 Nóvember 2015 09:42

Laust fyrir kl. 08:00 í morgun varð alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum fyrir botni Eskifjarðar.  Þar rákust saman tvær bifreiðar, sem voru að koma úr gagnstæðri átt. Í annarri bifreiðinni voru þrír einstaklingar en tveir í hinni.  Slökkvilið Fjarðabyggðar þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út úr annarri bifreiðinni.  Þrír voru fluttir með sjúkrabifreiðum til aðhlynningar á sjúkrahúsi í Neskaupstað en tveir voru fluttir til skoðunnar á Heilsugæslustöðina á Eskifirði.

Ísing var á vettvangi og því mikil hálka.

Ekki er að svo stöddu hægt að greina frekar frá málinu en rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi fer með frekari rannsókn málsins.