6 Desember 2017 08:05

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók grárri bifreið á gangandi vegfaranda á gangbraut í Bólstaðarhlíð við gatnamót Stakkahlíðar í Reykjavík fimmtudagsmorguninn 30. nóvember sl. um klukkan 9. Lögreglu var tilkynnt um slysið í gær, en þá hafði vegfarandinn, kona á þrítugsaldri, fundið fyrir eymslum og óþægindum í kjölfar slyssins. Hún ræddi við ökumanninn, sem er kona á svipuðum aldri, á vettvangi en láðist að skrá niður upplýsingar vegna hugsanlegra eftirmála.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gisli.arnason@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.