12 Desember 2017 13:19

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók svörtum jepplingi á gangandi vegfaranda á gangbraut á Kringlumýrarbraut í Reykjavík, á móts við Suðurver, miðvikudaginn 29. nóvember um klukkan 16.50. Vegfarandinn, 16 ára stúlka, fann fyrir eymslum og óþægindum í kjölfarið og leitaði til læknis daginn eftir slysið, auk þess að tilkynna um það til lögreglu.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.