10 Janúar 2017 15:13

Rannsókn á tildrögum slyss í Dyrhólaey stendur enn yfir.  Fyrir liggur að mikið brim og sog var við ströndina í gær og aldan breytileg þannig að á stundum náði hún tiltölulega skammt upp í fjöruna en síðan komu stærri fyllur sem lömdu á klettum eyjarinnar.  Konan sem lést hafði farið ásamt eiginmanni sínum, syni á þrítugs aldri og 14 ára dóttur niður í svokallaða Kirkjufjöru austast á Dyrhólaey þegar stærri alda kemur og fellir soninn og tekur hann með sér út.  Móðirin lendir einnig í briminu og fer út með soginu.   Sonurinn kemst af sjálfsdáðum í land og ásamt föður sínum og systur í öruggt skjól.   Öll fjölskyldan mun með einum eða öðrum hætti hafa lent í briminu en mis mikið þó.

Björgunarsveitir sjúkralið og lögregla voru kölluð í Reynisfjöru en þess ber að geta að skv. landakorti nær Reynisfjara allt frá Reynisfjalli vestur að Dyrhólaós.   Um klukkustund eftir að tilkynning um slysið barst sást hvar konan rak á land í fjöruna skammt austan við Dyrhólaós.  Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar flutti hana á sjúkrahús í Reykjavík en þá höfðu lífgunartilraunir áhafnar þyrlunnar ekki borið árangur og var hún úrskurðuð látin fljótlega eftir komu á slysadeild.

Eiginmaður konunnar og börn voru flutt með sjúkrabifreið á slysadeild í Reykjavík en voru útskrifuð í gærkvöldi og aðstoðaði lögregla þau við að komast í náttstað.  Þau njóta aðstoðar sendirðáðs síns.

Við Dyrhólaey eru skilti á þremur tungumálum auk íslensku sem vara m.a. við hættu af sjógangi.  Göngustígar eru víðast afmarkaðir með keðjum. 

Áfram er unnið að rannsókn málsins.