9 Ágúst 2016 11:36

Tveir ökumenn voru kærðir, í liðinni viku, fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var stöðvaður 1. ágúst á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði en hinn þann 5. s.m í Skötufirði.  Mikilvægt er að ökumenn sem þannig er ástatt með séu ekki í umferðinni, sjálfum sér eða öðrum vegfarendum til hættu.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í vikunni, akandi bifreiðum með negldum hljólbörðum. Hér virðist vera um trassaskap að ræða.  Til upplýsinga þá nemur sekt við slíku broti 5.000 kr. fyrir hvern hjólbarða, eða 20.000 kr. ef allir fjórir hjólbarðarnir eru negldir á þessum árstíma.

All margar tilkynningar hafa borist í vikunni um að ekið hafi verið á búfé. Tilkynningar hafa aðallega borist úr Ísafjarðardjúpi, en einnig frá Dýrafirði og Arnarfirði.

Alls voru 60 ökumenn kærðir í liðinni viku fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Flestir þessara ökumanna voru í akstri á Djúpvegi, en einnig í Strandasýslu, í Ísafjarðarbæ og í Vesturbyggð.

Einn ökumaður var kærður fyrir að nota síma án handfrjáls búnaðar meðan á akstri stóð. Þessa dagana hefur tryggingafélag eitt verið að minna á að noti ökumaður síma séu 23 sinnum meiri líkur á því að viðkomandi lendi eða valdi slysi.  Það hljómar mjög sennilega.  Lögreglan mun fylgjast áfram með því að þetta ákvæði umferðarlaga sé virt af ökumönnum.

Þann 3. ágúst slasaðist ferðamaður er hann féll fram fyrir sig í fjörunni á Hvítanesi í Ísafjarðardjúpi. Hinn slasaði var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Ísafirði og þaðan með sjúkraflugi til Rvíkur vegna gruns um augnskaða.

Að kveldi 3. ágúst barst hjálparbeiðni vegna konu sem hafði öklabrotnað er hún var að síga við Eiðshamra skammt frá Munaðarnesi á Ströndum. Björgunarsveitarmenn frá Strandasól komu hinni slösuðu um borð í sjúkrabifreið sem ók með hana að flugvellinum á Gjögri þar sem hún var flutt flugleiðis undir læknishendur.

Um miðnættið, aðfaranótt sunnudagsins 7. ágúst var skotið upp flugeldum í miðbæ Ísafjarðar. Eins og flestir vita er slíkt bannað, nema á tímabilinu frá 28. desember til 6. janúar, ár hvert.  Hátterni sem þetta er til þess fallið að raska næturró íbúa.

Tilkynnt var um sex umferðaróhöpp í umdæminu í liðinni viku. Í tveimur tilvikum var um að ræða bílveltu, annars vegar í Gufudal og hins vegar við Drangsnesafleggjarann.  Engin slys urðu á ökumönnum eða farþegum í þessum tilvikum né heldur í hinum fjórum óhöppunum.

KL.14:04 þann 3. ágúst sl. barst lögreglunni tilkynning um að iPad mini hafi verið stolið úr búningsklefa tilheyrandi sundlauginni á Drangsnesi. Búi einhver yfir upplýsingum um þennan þjófnað er sá eða þeir hvattir til að hafa samband við lögregluna í síma 444 0400.