16 Janúar 2017 14:55
Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp í liðinni viku. Annað þeirra varð á Súðavíkurhlíð að kveldi 12. janúar sl. en þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni. Bifreiðin rann út af veginum og fór veltur ofan vegarins. Ökumaðurinn, sem var einsamall í bifreiðinni, slapp án meiðsla, enda með öryggisbeltið spennt. Bifreiðin var óökufær eftir atvikið. Hitt óhappið varð á Gemlufallsheiði um miðjan dag sama dag, þann 12. janúar, en þá rann bifreið til og utan í vegrið sem er Bjarnadalsmegin við heiðina. Bifreiðin festist og þurfti að losa hana. Hvorki ökumann eða farþega sakaði.
Einn ökumaður var kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í liðinni viku. Ökumaðurinn var stöðvaður í umferðareftirliti í miðbæ Ísafjarðar.
Lögreglan lagði hald á pakkasendingu sem send var frá höfuðborgarsvæðinu á ákveðinn aðila í Strandasýslu. Um var að ræða um 4 grömm af kannabisefnum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum.