19 Júní 2019 15:56

Þremenningunum, sem voru handteknir í aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi í síðustu viku, hefur verið sleppt úr haldi. Rannsókn málsins miðar vel, en í þágu hennar hefur verið lagt hald á um 3 kg af amfetamíni, 90 gr. af kókaíni og rúmlega 100 e-töflur. Lögreglan hefur enn fremur haldlagt og kyrrsett eignir, en grunur er um að tilurð þeirra megi rekja til ágóða af brotastarfsemi.

Rannsókn lögreglu, sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur, snýr m.a. fíkniefnamisferli og peningaþvætti, en ráðist var í þrjár húsleitir vegna þess eins og áður hefur komið fram.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í baráttu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.