1 Apríl 2025 16:26
Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut í Reykjavík skömmu fyrir klukkan þrjú í dag. Þar var bifreið á norðurleið ekið á gangandi vegfaranda norðan megin brúarinnar (Breiðholtsbraut að Nýbýlavegi). Vegfarandinn var fluttur á slysadeild.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.