26 Apríl 2007 12:00

Síðast liðinn þriðjudag 24. apríl kom til landsins með ferjunni Norrænu einn af hinum svokölluðu mótmælendum Kárahnjúkavirkjunar. Þurfti lögreglan á Seyðisfirði að birta honum dóm héraðsdóms Austurlands þar sem hann hafði verið dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið vegna frelsissviptingar skrifstofufólks á Reyðarfirði og óhlýðni við fyrirmæli lögreglunnar. Hann ásakaði lögreglumann í sjónvarpsviðtali um að hafa meðan á tollafgreiðslu bifreiðar sinnar stóð hótað sér að koma fíkniefnum eða “einhverju” eins og mótmælandinn orðaði það fyrir í bifreiðinni til að geta vísað honum úr landi. Þetta er vart svaravert og í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að þessi maður ásamt félögum sínum hefur undanfarin 2 ár komist upp með það að ásaka lögregluna á Íslandi, sem samkvæmt skoðanakönnunum nýtur mikils trausts almennings m.a. fyrir heiðarleika, um margs konar ávirðingar í starfi. Engar kærur hafa komið fram vegna þessara meintu ávirðinga. Hafa fjölmiðlar tekið þessum yfirlýsingum eins og nýju neti og birt þær jafnóðum nær gagnrýnislaust. Lögreglan hefur leitast við að svara þessu jafnóðum en hefur ekki fengið eins mikinn tíma í fjölmiðlum og mótmælendur og hlutleysis í fréttaflutningi hefur að mati lögreglunnar ekki verið gætt, sem skyldi. Það er þekkt aðferðafræði mótmælenda að ata mótherja sína auri til að reyna að bæta eigin málstað og koma á þá höggi. Lögreglan biður landsmenn að taka fréttum á komandi sumri af samskiptum lögreglunnar og mótmælenda með gagnrýnum huga, en þeir hafa boðað uppsetningu mótmælendabúða frá og með 6. júlí 2007. Lögreglan hefur ekki afskipti af mótmælendum af fyrra bragði og þarf til að koma háttsemi af þeirra hálfu sem varðar við lög eins og dómar í málum þeirra fyrir héraðsdómum Reykjavíkur og Austurlands sanna.

                                                                        Lögreglustjórinn á Seyðisfirði

                                                                        Lárus Bjarnason