22 Mars 2010 12:00

Átta líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina og voru þær flestar minniháttar. Sú alvarlegasta átti sér stað í heimahúsi í austurborginni á laugardagsmorgun en þar var maður stunginn og/eða skorinn í hálsinn. Árásarþolinn, karl á fimmtugsaldri, var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn, piltur um tvítugt, var handtekinn skömmu síðar, annars staðar í borginni. Ekki er vitað hvað árásarmanninum gekk til.