20 Júlí 2009 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag og tveir á sunnudag. Fjórir voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Garðabæ og á Kjalarnesi. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-46 ára og þrjár konur en þær eru allar um tvítugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.