2 Apríl 2025 10:07

Karlmaður lést eftir umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Reykjavík, norðan megin brúarinnar (Breiðholtsbraut að Nýbýlavegi) á þriðja tímanum eftir hádegi í gær. Þar var bifreið á norðurleið ekið á manninn, sem var fótgangandi. Hann var fluttur á slysadeild og úrskurðaður látinn eftir komuna þangað.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.