11 Febrúar 2010 12:00

Nokkuð er um að bílum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan minna á að þeir séu ekki skildir eftir ólæstir og í gangi. Á þessu er misbrestur og það færa þjófar sér í  nyt eins og mörg dæmi er um. Síðast í gærkvöld kom mál af þessu tagi á borð lögreglu en þá var bíl stolið á Seltjarnarnesi. Ökumaðurinn hafði skroppið inn í hús en skilið bílinn eftir á meðan ólæstan og í gangi. Þegar maðurinn kom aftur að bílnum eftir að hafa lokið erindi sínu greip hann í tómt, bíllinn var á bak og burt. Bíllinn fannst nokkru síðar í miðborginni þar sem þjófurinn hafði skilið hann eftir.