31 Maí 2025 13:04

Búast má við mikilli umferð í Laugardalnum síðdegis, en í Laugardalshöll eru tónleikar á dagskrá sem hefjast kl. 17 og standa yfir langt fram á kvöld. Ökumenn eru hvattir til að sýna þolinmæði og skilning, flýta sér hægt, leggja löglega og að sjálfsögðu að vera allsgáðir við stýrið.

Vegna tónleikanna í Laugardalshöll er aftur vakin athygli á því að fjölda bílastæða er að finna í Laugardal. Tónleikagestir eru hvattir til að nýta þau, en meðfylgjandi er kort sem sýnir hvar stæðin er að finna. Og svo er líka upplagt að geyma bílinn heima og taka strætó í bæinn!