10 Maí 2025 11:16

Fjölmennur samráðsfundur verkefnisins Öruggari Suðurnes fór fram nýverið þar sem lykilaðilar úr samfélaginu komu saman til að ræða stöðu og velferð barna á svæðinu. Fundurinn var haldinn á vegum svæðisbundins samráðs sem samanstendur af lögreglustjóranum á Suðurnesjum, öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslunni Höfða, Keili, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og sýslumanninum á Suðurnesjum.

Svæðisbundið samráð um afbrotavarnir er stutt af ríkislögreglustjóra sem hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum.

Fimm víddir farsældar í brennidepli

Dagskrá fundarins byggði á fimm víddum farsældar barna samkvæmt lögum um samþætta þjónustu við börn: menntun, samfélagslega þátttöku, lífsgæði og félagslega stöðu, heilbrigði og vellíðan, og öryggi og vernd.

Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, kynnti niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem veita innsýn í líðan og aðstæður barna á svæðinu. Í kjölfarið voru haldin pallborð þar sem fagfólk og ungmenni ræddu hvernig styrkja megi tengsl barna við fullorðna í skólaumhverfinu, auka þátttöku í tómstundum og íþróttum, og tryggja að öll börn fái tækifæri til að blómstra. Voru þátttakendur sammála um að ánægjulegt væri að sjá að fleiri börn á Suðurnesjum töldu sig geta leitað til fullorðinnar manneskju sem þau treystu samanborið við á landsvísu.

Rödd barna og samvinna í forgrunni

Í pallborðum tóku þátt meðal annars þroskaþjálfi, skólahjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafar, íþróttafulltrúar, fulltrúar ungmennaráða og lögreglan á Suðurnesjum. Sérstök áhersla var lögð á að hlusta á raddir barna og ungmenna sjálfra og hvernig þau upplifa öryggi og stuðning í sínu nærumhverfi. Erindi fluttu meðal annarra Guðlaug Rakel Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri HSS, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir félagsráðgjafi og Kristín Skjaldardóttir samskiptaráðgjafi.

Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, lagði áherslu á mikilvægi samvinnu:„Öruggara samfélag fyrir börn verður aðeins til í samvinnu allra sem koma að lífi þeirra – og við sem störfum í lögreglu viljum leggja okkar af mörkum m.a. í  gegnum svæðisbundið samráð og samfélagslöggæslu. Markmiðið er að hlusta, læra og taka þátt í að byggja upp örugg og traust tengsl í nærumhverfi barna, fjölskyldna og okkar allra hér á Suðurnesjum til að varna afbrotum og bæta viðbrögð okkar.“

Næstu skref

Á meðan á fundinum stóð var safnað stafrænt í hugmyndabanka þar sem gestir gátu deilt tillögum, hugmyndum og ábendingum. Þær verða nýttar í starfi framkvæmdateymis Öruggari Suðurnes fram að næsta samráðsfundi að ári.

Sjá nánar:

Svæðisbundið samráð og samfélagslöggæsla

Stofnun Öruggari Suðurnesja

Ætíð skal hafa samband við 112 í neyð