8 Janúar 2025 14:02

Árið 2024 var viðburðarríkt hjá lögreglu. Náttúran hélt áfram að láta finna fyrir sér og voru jarðhræringarnar á Reykjanesi viðamestar. Alls gaus sex sinnum í Sundhnúksgígaröð við Grindavík.

Á árinu tókst lögregla jafnframt á við eitt stærsta löggæsluverkefni sem hún hefur sinnt, Norðurlandaráðsþingið, sem fór fram hér á landi í lok október. Margir erlendir þjóðarleiðtogar komu á þingið og  var forseti Úkraínu meðal gesta. Rúmlega 300 lögreglumenn komu að verkefninu og sinntu öryggisgæslu á meðan þinginu stóð.

Fyrir utan þessi stóru verkefni hafa önnur verkefni lögreglu verið með hefðbundnu sniði. Árið 2024 voru skráð rúmlega 148 þúsund mál hjá lögreglu sem gerir um 405 mál á dag og 17 mál á hverri klukkustund.

Verkefni lögreglu geta verið margvísleg og tengjast ekki alltaf afbrotum heldur einnig veikindum, slysum eða öðru sem fólk þarf aðstoðar með. Um 31% landsmanna leita til lögreglu með þjónustu eða aðstoð árlega.

Flest hegningarlagabrot eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu, eða 9.400 talsins sem er svipaður fjöldi og árið á undan.

Árið 2024 var heildar fjöldi ofbeldisbrota lægri en meðaltal síðustu þriggja ára (↓3%) en brotin hafa þó verið óvenju mörg árin 2021-2024 miðað við áratuginn þar á undan (rétt yfir 2.000 að meðaltali 2021-2024 en um 1.500 að meðaltali áratug þar á undan). Meiriháttar og stórfelld ofbeldisbrot voru rétt um 300 talsins (↑19%) árið 2024 og því um fimmtungi fleiri en að meðaltali árin 2021-2023.

Ekki hafa verið skráð fleiri manndráp hér á landi ef miðað er við fjölda látinna á íbúa ef litið er aftur til aldamóta. Grunur var um manndráp í sjö málum en alls létust átta einstaklingar í málunum. 

Lögregla og tollgæsla leggja hald á talsvert magn fíkniefna á hverju ári. Árið 2024 var engin undantekning þar á en lagt var hald á rúmlega 283 kg. af maríjúana sem er mesta magn sem lögregla og tollur hafa haldlagt á einu ári.

Nánari upplýsingar um tölfræðina fyrir árið 2024 má finna hér.