12 Júní 2025 11:00

Frá og með 1. júlí 2025 verða stafræn skírteini, meðal annars ökuskírteini og skotvopnaskírteini, ekki lengur aðgengileg í Apple wallet og Google wallet. Markmið breytingarinnar er að tryggja samræmda og örugga notkun stafrænna skírteina með því að veita aðgang að þeim á einum stað – í ísland.is appinu.

Hvað þýðir þetta fyrir þig sem notanda?

Ef þú ert með stafrænt ökuskírteini eða stafrænt skotvopnaskírteini í símaveski, þarft þú frá og með 1. júlí að nota þau:

  • Í gegnum ísland.is appið
  • Með því að skrá þig inn á island.is í vafra

Stafrænu ökuskírteinin og skotvopnaskírteinin halda áfram að vera í fullu gildi og hægt er að sýna þau í síma – en ekki í gegnum símaveski (Wallet).

Núverandi skírteini í símaveski má þó nota áfram til 30. ágúst 2025. Eftir þann tíma verða stafræn skírteini eingöngu aðgengileg í Ísland.is appinu.

Hvernig nálgast ég mitt stafræna ökuskírteini og skotvopnaskírteini?

  1. Sæktu Ísland.is appið úr App store eða Google Play.
  1. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
  1. Veldu “Skírteini” í valmynd.
  1. Þar birtast skírteini með strikamerki og mynd.