25 Janúar 2011 12:00

Í morgun, þriðjudag, var tilkynnt um innbrot í sumarbústað í Vaðnesi í Grímsnesi.  Innbrotið hefur átt sér stað á tímabilinu frá því um kl. 11:00 á sunnudag þar til um kl. 17:00 í gær, mánudag.  Umsjónarmaður sumarbústaða á svæðinu veitti því athygli á eftirlitsferð sinni að búið var að spenna upp útihurð.  Við nánari skoðun kom í ljós að þjófar höfðu verið á ferð sem stálu 32 tommu Philips flatskjá, og Boss hleðsluborvél.  Lögreglan á Selfossi biður þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010.