2 Desember 2019 09:29

Lögreglan á Austurlandi hefur undanfarnar vikur verið í átaki vegna vanbúina ökutækja og voru 127 ökumenn stöðvaðir sem voru á ferðinni með ljósabúnað í ólagi. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir fyrir að skafa ekki almennilega af rúðum bifreiða sinna.

Þá má geta þess að 23 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og tveir ökumenn voru kærðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá voru 5 kærðir fyrir stöðvunarskyldubrot og 2 fyrir að leggja í stæði fatlaðra.

Það er ljóst að átak lögreglunnar hefur skilað góðum árangri og flestir þeirra ökumanna voru á ferðinni með ljósabúnað í ólagi gert bragabót á því.

Lögreglan mun í desember leggja sérstaka áherslu á eftirlit með ölvunar og fíkniefnakstri og mega ökumenn búast við að verða stöðvaðir ef svo ber undir.

Lögreglan hvetur jafnframt foreldra til setja endurskinsmerki á útifatnað barna sinna en það hefur verið nokkuð áberandi á sumum stöðum að börn eru ferðinni án þess að vera með endurskinsmerki og sjást þar af leiðandi illa í umferðinni.