15 September 2011 12:00

Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík, á móts við Brúnastaði. Um var að ræða 17 ára pilt en bíll hans mældist á 108 km hraða þar sem hámarkshraði er 50.