14 Október 2011 12:00

Ölvaður ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í hádeginu en um var að ræða karl á þrítugsaldri, sem lögreglan hafði afskipti af í Árbæ. Síðdegis var kona á sextugsaldri færð á lögreglustöð eftir umferðaróhapp í Garðabæ en grunur lék á að hún væri undir áhrifum lyfja.